Gæðavottun

Veðurstofa Íslands rekur gæðastjórnunarkerfi samkvæmt alþjóðlega gæðastaðlinum ISO 9001.

Flugveðurþjónusta Veðurstofunnar var gæðavottuð 2006 af bresku gæðavottunarstofnuninni British Standard Institute (BSI). Ísland hefur veigamiklu hlutverki að gegna varðandi öryggismál fyrir alþjóðlega flugumferð á Norður-Atlantshafssvæðinu.

Önnur veðurþjónusta Veðurstofunnar var gæðavottuð 2007, þ.e. almenn veðurþjónusta, sjóveður-þjónusta og hafísþjónusta.

Gæðavottun allrar veðurþjónustu Veðurstofunnar hefur verið viðhaldið síðan. Nýtt vottunarskjal, sem sjá má hér að neðan, var gefið út í kjölfar vottunarúttektar BSI sem fram fór í júnímánuði 2009.

Markmið Veðurstofunnar er að gæðastjórnunarkerfið taki til allar starfsemi stofnunarinnar. Það felur í sér:

  • Að öll þjónusta lúti skilgreindum og skilvirkum verkferlum
  • Að þjónustan uppfylli þær gæðakröfur sem til hennar eru gerðar

Gæðavottun starfsemi veðurstofa víða um heim er mikilvæg til að bæta rekstur þeirra og til að koma til móts við kröfur notenda.

Viðurkenningarskjal
Vottun
Skjal frá bresku gæðavottunarstofnuninni (BSI) um vottun veðurþjónustunnar.




 




Aðrir tengdir vefir


Eplica CMS. eplica cmscms - for more info goto http://www.eplica.is.