Hlutverk Veðurstofu Íslands

Megintilgangur Veðurstofu Íslands er að auka öryggi og hagkvæmni í rekstri samfélagsins með því að:

  • að vinna að rannsóknum á starfssviðum stofnunarinnar er hafi það að höfuðmarkmiði að auka þekkingu á ýmsum eðlisþáttum lofts, láðs og lagar, auka þekkingu á vatnafari, veðurfari og jarðskjálftavirkni landsins, bæta þjónustuna og auka hæfni stofnunarinnar til að láta í té upplýsingar í þágu atvinnulífs, öryggismála, sjálfbærrar nýtingar auðlinda og annarra þarfa landsmanna;
  • vakta, greina, upplýsa, rannsaka, veita ráðgjöf og spá fyrir um hegðan náttúrunnar og náttúruvá
  • tryggja söfnun og vörslu gagna og þekkingar um langtímaþróun veðurfars og annarra umhverfisþátta sem eru á forræði stofnunarinnar

Veðurstofa Íslands starfar samkvæmt lögum og reglugerð um Veðurstofu Íslands, lögum um veðurþjónustu, lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og reglugerð um sama efni, og reglugerðrar um hættumat á skíðasvæðum (pdf 0,05 Mb).

 




Aðrir tengdir vefir


Eplica CMS. eplica vefurvefur - for more info goto http://www.eplica.is.